Hoppa yfir í aðalefni

Fyrstu skref

Nýr notandi Nextcloud?

Byrjaðu á opinberu notendahandbók Nextcloud til að kynna þér hvernig notendaviðmótið virkar almennt — innskráning, skráavafrinn, gagnadeiling og fleira. Bróðurparturinn af efninu á þessum síðum er sértækt fyrir það hvernig IREI keyrir sitt eigið Nextcloud-umhverfi.

Að fá aðgang að IREI Nextcloud​

Nextcloud gagnaskýið stendur til boða vísindamönnum við íslenska háskóla og opinberar rannsóknarstofnanir, sem og sjálfstætt starfandi vísindamönnum sem njóta opinberra rannsóknarstyrkja.

Sækja um aðgang →

Það eru tvær leiðir til að fá aðgang:

  • Ertu í samstarfi á verkefni sem þegar er fjármagnað af Innviðasjóði Rannís? Þá sækir þú ekki um sjálf/ur — verkefnisstjóri (PI) þinn óskar eftir að þér verði bætt við sem notanda í kerfinu (ef þarf) og veitir þér aðgang að Nextcloud-hópamöppu (team folder) verkefnisins.
  • Allir aðrir sækja um aðgang að gagnaskýinu beint í gegnum þjónustugáttina. Hafðu tiltæka stutta verkefnislýsingu, áætlaðan aðgangstíma og hvaða hugbúnað/tilföng þú reiknar með að nota.

Fullar reglur og reglugerðir →

Athugið

Þarftu meira en 1TB af gagnaplássi? Taktu það þá fram í umsókninni, með stuttum rökstuðningi.