Hoppa yfir í aðalefni

Nextcloud - Algengar spurningar


Hvað er Nextcloud?

Nextcloud gagnaskýið er hluti af IREI-innviðakjarnanum (Icelandic e-Research Infrastructure) sem er rekinn af Upplýsingatæknisviði Háskóla Íslands (UTs). Þjónustan er sérstaklega ætluð til geymslu og miðlunar rannsóknargagna, t.d. hrárra raðgreiningargagna og annarra stórra gagnasafna sem myndast í vísindaverkefnum.


Hvernig virkar Nextcloud?

Nextcloud virkar að mörgu leyti eins og OneDrive og Google Drive og fleiri slíkar þjónustur, en gerir einnig margt fleira. Kerfið er hannað af og fyrir háskóla og aðrar rannsóknarstofnanir og með þeirra sérþarfir í huga: að geta ráðið við mikið gagnamagn, áhersla á gagnaöryggi, sameiginleg gagnasvæði og deiling gagna í vísindasamstarfi, beintenging við HPC-umhverfi IREI og fleira.


Hverjir geta fengið aðgang?

Gagnaskýið og aðrar þjónustur IREI eru í boði fyrir vísindamenn við íslenska háskóla og ríkisreknar rannsóknarstofnanir. Vísindamenn á sjálfstæðum rannsóknarstofnunum geta einnig fengið aðgang að því gefnu að rannsóknir þeirra séu fjármagnaðar með opinberum styrkjum.


Hvernig fæ ég aðgang?

Senda þarf inn formlega umsókn um aðgang og gagnapláss (https://www.irei.is/#/applications). Nemendur geta sótt um gegnum umsjónarmann/leiðbeinanda sinn. Umsóknin þarf að innihalda upplýsingar um verkefnið, áætlaður tími þar til verkefni klárast og eftir atvikum hvaða hugbúnað og kerfi eru nauðsynleg til þess að klára verkefnið.


Hversu mikið diskapláss/gagnamagn er í boði og hvað kostar það?

Reiknað er með ákveðnu lágmarks gagnaplássi á heimasvæði hvers notanda í Nextcloud. Sameiginleg svæði sett upp fyrir hópa/teymi eru með eigin afmarkaða gagnamagnskvóta sem fer eftir umfangi verkefnis og er ákveðið í samráði við IREI. Sem stendur er ekki rukkað sérstaklega fyrir gagnamagn í Nextcloud eða gagnageymslunni á HPC-kerfi IREI.


Eru gögnin hýst á Íslandi?

Já. Allar þjónustur IREI keyra beint á eigin vélbúnaði UTs og gögn eru geymd í gagnaverum UTs á Íslandi, staðsett í Sögu og hjá Veðurstofunni. Til samanburðar eru OneDrive (fyrir einstaklinga) og Teams/Sharepoint (fyrir hópa) , líkt og aðrar þjónustur í Menntaskýinu, hýstar í gagnaverum Microsoft á Írlandi. Þær þjónustur henta því ekki ef gögn þurfa að vera staðsett á Ísland og/eða um mjög stór gagnasöfn er að ræða.


Hvað með gagnaöryggisvottun?

Gagnaöryggi hjá UTs, og þar með í gagnaskýi IREI, byggir á ÍST ISO/IEC 27001 staðlinum um stjórnunarkerfi upplýsingaöryggis, sem tryggir leynd, réttleika og tiltækileika gagna. HÍ / UTs er með formlega vottun samkvæmt staðlinum. Reglulegar öryggisúttektir eru framkvæmdar og upplýsingaöryggisstjóri gefur árlega út skýrslu um framkvæmd öryggisstefnunnar.


Eru gögnin dulkóðuð í Nextcloud?

Öll gögn sem eru send inn í eða sótt úr gagnaský IREI eru dulkóðuð á leiðinni (e. encrypted in transit). Gögn eru hins vegar ekki dulkóðuð á diski / í hvíld (e. at rest), en rík áhersla er lögð á aðgangsstýringu og að fylgja ISO/IEC 27001 staðlinum til að tryggja gagnaöryggi. Ef verkefnið ykkar er með stífari öryggiskröfur t.d. varðandi dulkóðun gagna á diski, hafið samband við IREI.


Hver ber ábyrgð á gögnunum?

Sem rekstraraðili ber UTs ábyrgð á að óviðkomandi aðilar komist ekki í gögnin, og gerir til þess viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar verndarráðstafanir. UTs ber skylda til að tilkynna öryggisbrot til Persónuverndar. Þeir sem setja gögnin inn bera ábyrgð á þeim að öðru leyti, svo sem að rétt leyfi séu fyrir hendi, t.d. frá Vísindasiðanefnd ef um viðkvæm persónugreinanleg gögn er að ræða.


Hvernig fæ ég aðstoð við að nota Nextcloud?

Þjónustumiðja HÍ áframsendir almennar fyrirspurnir til IREI-teymisins. Fyrir tæknilegar fyrirspurnir eða beiðnir tengdar ákveðnum verkefnum, hafið samband beint við IREI með tölvupósti í irei@hi.is eða gegnum https://www.irei.is/#/contact.